Starfsbraut FB hlýtur tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna

5. október 2026

Starfsbrautin er tilnefnd fyrir framúrskarandi skólastarf

Starfsbraut FB hefur hlotið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 fyrir framúrskarandi skólastarf.


Starfsbrautin er tilnefnd fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem miðar að því að efla hæfni og getu nemenda til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs. Í starfi brautarinnar er lögð rík áhersla á sjálfstæði og sjálfsábyrgð nemenda og eru kennsluhættir og nám sniðin að þörfum, getu og áhugasviði hvers og eins.


Tilnefningin er mikil viðurkenning fyrir það metnaðarfulla og fjölbreytta starf sem unnið er á starfsbraut FB og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.


Við óskum starfsfólki og nemendum starfsbrautar innilega til hamingju með tilnefninguna!



Á myndinni er starfsfólk starfsbrautar kampakátt með tilnefninguna. Hér má lesa nánar um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026.

25. september 2026
Sköpun, endurnýting og þjóðlegar hefðir í Nordplus-verkefni
10. september 2026
Anne boðið að taka þátt í Iceland Fashion Week
Fleiri færslur