Myndlistarnemar FB í námsferð til Ítalíu
Myndlistarnemar FB í námsferð til Ítalíu
Hópur 12 nemenda af Myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fór nýverið í námsferð til Ítalíu ásamt fagstjóra listnáms og myndlistarkennara. Ferðin var skipulögð sem hugmyndavinnu- og undirbúningsferð fyrir lokaáfanga í myndlist sem nemendur munu fara í á vorönn 2027.
Megináhersla ferðarinnar var heimsókn á Feneyjatvíæringinn (Biennale di Venezia), einn mikilvægasta vettvang samtímalistar í heiminum. Nemendur heimsóttu bæði sýningarsvæðin Giardini og Arsenale þar sem þeir kynntust fjölbreyttum verkum og hugmyndum listafólks frá ólíkum löndum. Ásta Fanney Sigurðardóttir fulltrúi Íslands á Feneyjar tvíæringnum tók á móti nemendum okkar í íslenska skálanum og kynnti verkið sitt.
Heimsókn á Feneyjatvíæringinn hefur sérstakt gildi fyrir myndlistarnemendur, þar gefst þeim tækifæri á að upplifa samtímalist í stærra samhengi og sjá hvernig listamenn nýta ólíkar aðferðir, miðla og framsetningu til að fjalla um brýn málefni samtímans. Slík reynsla eykur skilning á því að myndlist er ekki einungis fagurfræðileg tjáning heldur einnig leið til rannsóknar, gagnrýnnar hugsunar og samfélagslegrar umræðu. Með því að sjá hundruð verka og ólíkar sýningaruppsetningar fá nemendur víðari sýn á möguleika myndlistar og aukið sjálfstraust til að þróa eigin hugmyndir og listræna rödd.
Frá Feneyjum lá leiðin til Treviso þar sem nemendur tóku þátt í tveggja daga samstarfsverkefni með nemendum í grafískri hönnun við ENAC-skólann. Verkefnið, Reflections of Treviso eða Speglanir Treviso, fólst í að skoða borgina í gegnum ljósmyndun og grafíska hönnun. Íslenskir og ítalskir nemendur unnu saman í blönduðum hópum, könnuðu borgarrýmið frá nýjum sjónarhornum og hönnuðu bæklinga sem byggðu á sameiginlegri upplifun þeirra af Treviso.
Samstarfið reyndist afar gefandi og skapaði tækifæri til nýrra tengsla, menningarsamskipta og skapandi samvinnu. Nemendur fengu að kynnast ólíkum vinnuaðferðum og sjónarhornum, sem styrkti bæði samskiptahæfni þeirra og skilning á því hvernig list og hönnun geta orðið sameiginlegt tungumál þvert á menningarheima.
Ferðin var í senn lærdómsrík, krefjandi og hvetjandi. Hún veitti nemendum innsýn í alþjóðlega samtímalist, reynslu af þvermenningarlegu samstarfi og dýrmætan efnivið fyrir komandi lokaverkefni. Jafnframt sýnir hún mikilvægi þess að tengja listnám við raunverulega menningarupplifun og alþjóðlegt samstarf þar sem nemendur fá tækifæri til að þróa bæði listræna sýn, faglega sjálfsmynd og skilning á heiminum í kringum sig.

