Nemendur frá FB í starfsþjálfun á vegum Erasmus+

21. maí 2025

Frábært tækifæri fyrir verknámsnemendur í FB

Í vor og sumar fara 20 nemendur frá FB til útlanda í starfsþjálfun á vegum Erasmus+. Um er að ræða fjögurra vikna dvöl þar sem nemendur af verknámsbrautum öðlast reynslu í sínu fagi í gegnum störf á erlendri grundu.


Nú þegar hafa fimm sjúkraliðanemar haldið til starfa á hjúkrunarheimilum í Danmörku; þrír til Ebeltoft og tveir til Hornslet en einnig fóru þrír rafvirkjanemar til rafvirkjafyrirtækja í Herning.


Þá eru fimm snyrtifræðinemar farnir til Kanaríeyja, þrjár eru á Tenerife og tvær á Gran Canaria, þar sem þær eru í starfsþjálfun á spa-hótelum.

Í lok maí og í byrjun júní fara svo fleiri nemendur utan; einn textílnemi fer til Porto til fyrirtækis sem sérhæfir sig í ballettfatnaði, tveir myndlistarnemar fara til Frakklands á vinnustofu listamannsins Gwenn le Brenn og þangað fara einnig fjórir snyrtifræðinemar að vinna á spa-hótelum.



Þetta er frábært tækifæri fyrir nemendur FB en alþjóðleg samstarfsverkefni á borð við Erasmus+ auka víðsýni, efla skilning á mikilvægi tungumálakunnáttu og veita innsýn í líf og störf fólks í öðrum löndum. 

28. maí 2025
Sumar 2025
27. maí 2025
175 nemendur útskrifaðir við hátíðlega athöfn
Fleiri færslur