Prófsýning og útskrift

6. desember 2025

Lok haustannar

Miðvikudaginn 17. desember kl. 12:00-13:00 gefst nemendum og forráðamönnum tækifæri til að koma í skólann og fara yfir prófúrlausnir og námsmat haustannar með kennara. Kennarar verða til viðtals í stofum, listar yfir hvar kennarar eru til viðtals hanga í anddyri skólans.

Verið velkomin!


Útskriftarhátíð FB fer fram í Eldborg, Hörpu mánudaginn 22. desember klukkan 14:00, salurinn opnar klukkan 13:30 og áætlað er að athöfnin taki um eina og hálfa klukkustund. Aðstandendur útskriftarefna eru hvattir til að mæta, það er nóg pláss fyrir gesti.

29. apríl 2026
Páll Ísak er skákmeistari FB
21. apríl 2026
Ný verknámsaðstaða rís við Hraunberg
Fleiri færslur