Skráning á Sæludaga er hafin

5. mars 2026

Sæludagar eru 11. og 12. mars

Skráning á Sæludaga er hafin og stendur yfir 5.-8. mars. Hægt er að skrá sig í mesta lagi á fjóra viðburði.


Fyrir hvern viðburð sem nemandi mætir á losnar hann við fjarvistarstig, reglurnar um frádrátt fjarvistarstiga eru eftirfarandi:


Hægt er að fá að hámarki fjögur stig í einum áfanga og að hámarki í fjórum áföngum.

  • 16 stig: 4 áfangar, 4 stig í hverjum
  • 12 stig: 3 áfangar, 4 stig í hverjum
  • 8 stig: 2 áfangar, 4 stig í hvorum
  • 4 stig: 1 áfangi