VERKNÁM

SjúkraliðaBRú

Sækja um

Sjúkraliðabrú

Sjá svör við algengum spurningum undir 'Spurt og svarað hér til hliðar'.

Sjúkraliðabrú er námsleið til starfsréttinda sjúkraliða. Hún er ætluð fullorðnu fólki sem óskar að fá metna starfsreynslu og óformlegt nám á hjúkrunar‐ og umönnunarsviði til styttingar á námi á sjúkraliðabraut (SJUK).


Skilyrði til innritunar í nám á sjúkraliðabrú eru að umsækjandi sé orðinn 23 ára gamall, hafi þriggja ára starfsreynslu við umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra og framvísi staðfestingu á starfsreynslunni og meðmælum frá vinnuveitanda. Auk þess þarf viðkomandi að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga og/eða annarra aðila, að lágmarki 230-260 stundir, með það að markmiði að auka kunnáttu og færni til starfa á hjúkrunarsviði og skal það nám metið til styttingar á námi samkvæmt námskrá sjúkraliðabrautar. Umsækjendur, sem lokið hafa vissum áföngum í framhaldsskóla, geta fengið þá metna sem ígildi námskeiða. Þeir sem uppfylla þessi skilyrði skulu að lágmarki ljúka 141 eininga sérgreinanámi sjúkraliðabrautar. Starfsþjálfun sem nemandi tekur sem hluta af námi á sjúkraliðabraut skal fara fram á tveimur nýjum vinnustöðum/deildum. Þeir nemendur sem hefja nám á sjúkraliðabraut þurfa að taka alla hjúkrunaráfanga í FB og allt vinnustaðanám á vegum skólans.


Um útgáfu starfsleyfis vísast til reglugerðar nr. 897/2001 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða. Sá sem lokið hefur sjúkraliðanámi af brú með fullnægjandi árangri getur sótt um starfsleyfi sjúkraliða enda þótt viðkomandi hafi ekki lokið almennum greinum sjúkraliðabrautar. Sá hinn sami kann hins vegar að þurfa að ljúka námi í almennum greinum sjúkraliðabrautar til að geta stundað framhalds- eða viðbótarnám að loknu námi samkvæmt sjúkraliðabrú.


Viðtalstími fagstjóra sjúkraliðabrautar 

  • mánudaga kl. 9:45-10:40
  • þriðjudaga kl. 9:45-10:40
  • fimmtudaga kl. 9:45-10:40

 í viðtalsherbergi á móti stofu 32, panta þarf tíma á netfangið: sif@fb.is.



 

Athugið að meðfylgjandi brautarlýsing gildir fyrir nemendur sem hófu nám haustið 2025 eða síðar. Nemendur sem hófu nám fyrir þann tíma miða við eldri brautarlýsingu.


Yfirlit brautar (pdf)

KJARNI

Sjúkraliðabrú - almennar greinar Grein 1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Heilbrigðisfræði HBFR 1HH05 5 5
Líffæra- og lífeðlisfræði LÍOL 2SS05 2IL05 10 10
Næringarfræði NÆRI 1NN05 5 5
Sálfræði SÁLF 2IS05 5 5
Skyndihjálp SKYN 2EÁ01 1 1
Upplýsingatækni UPPT 2UT05 5 5
10 21 0 31
Sjúkraliðabrú - sérgreinar 1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Hjúkrun HJÚK 1AG05 3ÖH05 2HM05 2TV05 3FG05 5 10 10 25
Hjúkrun verkleg HJVG 1VH05 5 5
Líkamsbeiting LÍBE 1HB01 1 1
Lyfjafræði LYFJ 2LS05 5 5
Samskipti SASK 2SS05 5 5
Siðfræði SIÐF 2SA05 5 5
Sjúkdómafræði SJÚK 2MS05 2GH05 10 10
Sýklafræði SÝKL 2SS05 5 5
Starfsþjálfun 16 vikur STAF 3ÞJ27 27 27
Vinnustaðanám á sjúkrastofnun eða hjúkrunarheimili VINN 3ÖH08 2LS08 3GH08 8 16 24
11 48 53 115
1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Almennar greinar 10 21 0 31
Sérgreinar sjúkraliðabrúar 11 48 53 112
Samtals einingar á þrepum 21 69 53 143