VERKNÁM

SjúkraliðaBRAUT

Sækja um

Sjúkraliðabraut

Sjá svör við algengum spurningum undir 'Spurt og svarað hér til hliðar'.

Sjúkraliðanám er 204 eininga nám með námslok á 3. hæfniþrepi. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum. Sjúkraliðanám tekur að jafnaði 3 ár eða 6 annir. Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Í náminu er rík áhersla lögð á samvinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Til að nemandi getið hafið vinnustaðanám á sjúkrastofnun eða hjúkrunarheimili, þarf hann að hafa náð 18 ára aldri. Miðað er við fæðingardag nemanda. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem sjúkraliði á Íslandi. Starfsheitið sjúkraliði er lögverndað.


Viðtalstími fagstjóra sjúkraliðabrautar er

  • mánudaga kl. 9:45-10:40
  • þriðjudaga kl. 9:45-10:40
  • fimmtudaga kl. 9:45-10:40

 í viðtalsherbergi á móti stofu 32, panta þarf tíma á netfangið: sif@fb.is.


Inntökuskilyrði

Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Þeir nemendur sem hefja nám á sjúkraliðabraut þurfa að taka alla hjúkrunaráfanga í FB og allt vinnustaðanám á vegum skólans. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði hér.


Athugið að meðfylgjandi brautarlýsing gildir fyrir nemendur sem hófu nám haustið 2025 eða síðar. Nemendur sem hófu nám fyrir þann tíma miða við eldri brautarlýsingu.


Yfirlit brautar (pdf)

KJARNI BRAUTAR

Sjúkraliðabraut - almennar greinar Grein 1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Danska DANS 2AA05 5 5
Efnafræði EFNA 2GR05 5 5
Enska ENSK 2AF05 2RF05 3RS05 10 5 15
Félagsvísindi FÉLV 1JS05 5 5
Heilbrigðisfræði HBFR 1HH05 5 5
Íslenska ÍSLE 2II05 2KK05 10 10
Íþróttir ÍÞRÓ 1AÍ02 1GH02 Íþróttir 1 eining Íþróttir 1 eining 6 6
Líffræði LÍFF 1GL05 5 5
Líffæra- og lífeðlisfræði LÍOL 2SS05 2IL05 10 10
Næringarfræði NÆRI 1NN05 5 5
Sálfræði SÁLF 2IS05 3ÞS05 5 5 10
Skyndihjálp SKYN 2EÁ01 5 5
Stærðfræði STÆR 2RM05 5 5
Umsjón nýnema UMSJ 1UM01 1UF01 2 2
Upplýsingatækni UPPT 2UT05 5 5
28 56 10 94
Sjúkraliðabraut - sérgreinar 1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Hjúkrun HJÚK 1AG05 3ÖH05 2HM05 2TV05 3FG05 og 3LO03 5 10 13 28
Hjúkrun verkleg HJVG 1VH05 5 5
Líkamsbeiting LÍBE 1HB01 1 1
Lyfjafræði LYFJ 2LS05 5 5
Samskipti SASK 2SS05 5 5
Siðfræði SIÐF 2SA05 5 5
Sjúkdómafræði SJÚK 2MS05 2GH05 10 10
Sýklafræði SÝKL 2SS05 5 5
Starfsþjálfun 16 vikur STAF 3ÞJ27 27 27
Vinnustaðanám á sjúkrastofnun eða hjúkrunarheimili VINN 3ÖH08 2LS08 3GH08 8 16 24
11 48 56 115
1. þrep 2. þrep 3. þrep Samtals einingar
Almennar greinar 28 56 10 94
Sérgreinar sjúkraliðabrautar 11 48 56 115
Samtals einingar á þrepum 39 104 66 209