Fréttir og myndir af framkvæmdum

21. apríl 2026

Ný verknámsaðstaða rís við Hraunberg

Gaman er að fylgjast með byggingu nýrrar verknámsaðstöðu við FB, húsin eru heldur betur farin að taka á sig mynd að utan sem innan en í húsunum verður aðstaða fyrir rafvirkjabraut, húsasmiðabraut og myndlistarbraut. Í öðru af nýju húsunum verða ellefu 70 fermetra kennslustofur fyrir bóklegar og verklegar greinar auk mötuneytis nemenda. Í hinu húsinu verður listasmiðja fyrir myndlistarbraut ásamt gluggasmiðju og verkstæðisaðstöðu fyrir húsasmíðanema en hluti af þeirra námi hefur hingað til farið fram utandyra, auk þess verður salur fyrir verklega rafvirkjun, fyrirlestrarsalur og salernis- og sturtuaðstaða.


Áætlað er að húsin verði afhent í nóvember 2026 og kennsla hefjist í janúar 2027 en í sumar klárast lóðafrágangur, hjólaskýli o.fl. utandyra. Endurbótum á gömlu smiðjunni er lokið að utanverðu og verður hún tekin í gegn innandyra að ári. Meðfylgjandi myndir voru teknar á dögunum þegar fagstjórar húsasmiða-, myndlistar- og rafvirkjabrautar sýndu starfsfólki nemendaþjónustu FB nýju smiðjurnar.


25. mars 2026
Kennsla fellur niður vegna veðurs
20. mars 2026
Blómlegt alþjóðasamstarf í FB
Fleiri færslur