FB-ingar á faraldsfæti

20. mars 2026

Blómlegt alþjóðasamstarf í FB

Erlent samstarf hefur lengi verið öflugt í FB og skólaárið í ár er engin undantekning á því. Á síðustu tveimur vikum hafa nokkrir hópar farið utan í námsferðir og samstarfsverkefni.


  • 14 nemendur af íþróttabraut fóru í námsferð til Tenerife þar sem þau fóru m.a. á æfingu í kanarískri glímu, fengu brimbrettakennslu hjá færustu brimbrettaþjálfurum eyjunnar og heimsóttu skóla á eyjunni þar sem þau spreyttu sig á ýmsum gömlum þjóðaríþróttum. Ferðin var styrkt af Erasmus+.
  • Nemendur af fata- og textílbraut fóru til Porto þar sem þau heimsóttu fatahönnunarskólann Escola de moda, fóru á listasafn og efnavöruhús og fleira spennandi sem gaf þeim hugmyndir fyrir lokasýningu þeirra frá brautinni. Ferðin var styrkt af Erasmus+.
  • Sjö nemendur af snyrtibraut tóku þátt í Erasmusverkefni í Aþenu í Grikklandi sem fólst í keppni í ýmsum greinum snyrtifræðinnar auk þess að kynnast menningu og þjóð. Verkefnið er samstarfsverkefni Íslands, Ítalíu, Hollands og Grikklands.
  • Starfsbraut fór í afar vel heppnaða náms- og útskriftarferð til Tenerife sem var styrkt af Erasmus+. Hópurinn heimsótti m.a. framhaldsskóla á eyjunni þar sem þau kynntust námi og menningu eyjaskeggja og svo voru vel valdir túristastaðir heimsóttir.
  • Síðast en ekki síst fóru 15 nemendur af ýmsum brautum til Óðinsvéa í Danmörku þar sem þau heimsóttu danska nemendur sem komu hingað í FB sl. haust. Þau eru öll þátttakendur í Nordplusverkefninu The future of farming, health and living conditions of people in Iceland and Denmark. Hópurinn hlustaði á fyrirlestra sem tengjast hlýnun jarðar, vann verkefni og tilraunir og fór í áhugaverðar skoðunarferðir.


Ferðirnar heppnuðust vel í alla staði og nemendurnir voru sjálfum sér og skólanum til sóma. Fleiri myndir frá ferðunum eru á instagram skólans. Hér má lesa nánar um erlent samstarf í FB.




6. mars 2026
Útskriftarnemar vor 2026
5. mars 2026
Sæludagar eru 11. og 12. mars
Fleiri færslur