Margrét skipuð skólameistari FB

26. júní 2026

Mynd: Stjórnarráð Íslands

Margrét Jónsdóttir Njarðvík skipuð skólameistari frá 1. ágúst

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, skipaði í dag Margréti Jónsdóttur Njarðvík í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti til næstu fimm ára. Margrét er með MBA-gráðu í stjórnun og doktorsgráðu í spænsku máli og bókmenntum auk kennsluréttinda. Hún starfaði sem rektor í Háskólanum á Bifröst og hefur gegnt ýmsum störfum hjá Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Skipunin tekur gildi 1. ágúst næstkomandi. Margréti eru færðar bestu óskir um farsæld og gott gengi í starfi skólameistara.
Sjá nánar í frétt á vef Stjórnarráðs Íslands.

19. júní 2026
Nýnemar í FB eru 251 talsins
3. júní 2026
Guðrún Hrefna lætur af störfum
Fleiri færslur