Umhverfisbraut
Umhverfisbraut er ný námsbraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, kennsla á brautinni hefst haustið 2026.
Á umhverfisbraut er lögð áhersla á náttúrufræðikennslu, garðyrkju, skógrækt og umhverfisfræði. Námið tengir saman bóklegt nám í raunvísindum og verklegt nám í ræktun.
Nemendur læra að rannsaka og vinna með náttúrunni, öðlast skilning á lífríkinu, vistkerfum og sjálfbærni. Brautin er tilvalin fyrir skapandi nemendur sem hafa áhuga á umhverfinu. Í náminu er lagt upp með það að nemendur fái að að upplifa náttúruna, þau hvött til að hafa skoðanir á skipulagsmálum og taka þátt í umhverfismálum.
Námið er 200 einingar og því lýkur með stúdentsprófi. Brautin undirbýr nemendur fyrir háskólanám í jarðfræði, líffræði, næringarfræði, landslagsarkitektúr, umhverfisfræði, skógfræði og fjölda annarra greina. Nemendur útskrifast með góða undirstöðuþekkingu í náttúru- og umhverfisgreinum ásamt því að fá hagnýta innsýn í skógrækt, landgræðslu, matjurtarækt og skipulagsmál.
Umhverfisbraut er eins og aðrar stúdentsbrautir með sameiginlegan kjarna bóknámsbrauta sem eru 107 einingar. Sérhæfing umhverfisbrautar eru 93 einingar. Margir áfangar eru sameiginlegir með náttúruvísindabraut en að auki eru 30-35 einingar hagnýtir ræktunaráfangar.
Námsbrautin er í þróun og mun birtast hér innan tíðar.
Inntökuskilyrði
Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði hér.