Spurt og svarað

  • Hvernig sæki ég um kvöldskóla?

    Þú sækir ekki um, þú skráir þig á heimasíðu okkar í áfanga (þegar innritun hefst).

    Hlekkur á heimasíðu: Innritun í kvöldskóla, og velur áfanga eftir brautum, kerfið leiðir þig áfram í greiðslukerfið.

  • Hvernig greiði ég?

    Þú greiðir með korti um leið og þú sækir um.

  • Fæ ég greiðsluseðil?

    Nei. Þú greiðir um leið og þú sækir um.

  • Hvað kostar í kvöldskólann

  • Þarf ég að mæta?

    Það er ekki mætingarskylda í kvöldskólann. En það er prófa- og verkefnaskylda. Í mörgum verklegum greinum þarf að ljúka verkefnum á staðnum og þá þarf að mæta.

  • Hvernig veit ég hvaða áfanga ég byrja á að taka?

    Ef þú ætlar í verknám þá er best að skoða PDF skjöl á heimasíðunni um hvernig brautin er byggð upp.


    Húsasmíðabraut

    Sjúkraliðabraut

    Rafvirkjabraut

    Opin braut

  • Er öruggt að allir áfangar sem boðið er uppá verði kenndir?

    Nei það þarf 14 nemendur svo áfangi fari af stað, ef hætt er við áfanga færðu endurgreitt eða getur farið í annan áfanga.

  • Ef áfangi er fullur, er hægt að skrá sig á biðlista?

    Já það er hægt, hafa samband við skrifstofu, kvöldskólaskrifstofu eða námsráðgjafa og þau skrá þig á biðlista.

  • Hvernig get ég fengið aðstoð við innritun og námið?

    Með því að senda póst á kvold@fb.is og biðja um að hringt sé í þig.


    Eða tala við námsráðgjafa okkar.

  • Get ég leitað til námsráðgjafa?

    Já það er hægt. Sjá upplýsingar hér.