Spurt og svarað
Hvað er vinnustaðanám?
Rafræn ferilbók er skráning á námi nemanda á vinnustað. Nemandi hakar við einstaka þætti ferilbókar þegar hæfni er náð, auk iðnmeistara/tilsjónarmanns fyrirtækis sem er með nemann. Umsjónarmaður skóla staðfestir hæfni í lokin.
Ferilbók er því gott tæki fyrir nemann/meistarann/fyrirtækið og skólann til að fylgjast með námsframvindunni. Hér er hægt að sjá ferilbækur einstakra greina.
Hvernig get ég fundið vinnustað? Þarf ég að útvega mér vinnustað?
Almenna reglan er sú að nemendur sækja sjálfir um vinnustaðanám hjá þeim iðnmeisturum/fyrirtækjum/stofnunum sem mega taka nema í vinnustaðanám. Þannig hefur nemandinn áhrif á hvar hann tekur vinnustaðanámið. Hér er birtingaskrá sem er listi yfir þá sem mega taka nema á samning.
Hvað á ég að gera þegar ég er búin að finna fyrirtæki sem vill taka mig á samning?
Þá er næsta skref að sækja um á heimasíðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti ef samningur á strax að taka gildi. Þegar umsókn hefur verið samþykkt er opnuð rafræn ferilbók, samningur gerður rafrænt og sendur til undirritunar á nemann, meistarann og fulltrúa skólans.
Hvað er vinnustaðanámið langt?
Hæfni nemanda ræður tímalengd vinnustaðanáms. Hæfni nemanda er metin samkvæmt hæfnikröfum starfsins og hæfniþáttum í rafrænni ferilbók. Vinnustaðanám getur því verið mismunandi langt á milli einstakra nemenda. Vinnustaðanám getur þó aldrei orðið lengra en kemur fram í brautarlýsingu viðkomandi greinar.
Get ég verið á sama tíma í vinnustaðanáminu og í skólanum?
Það er hægt ef fyrirtækið/meistarinn sem tekur nemann samþykkir slíkt.