Áfangalýsing
Fjallað er um undirstöðuþætti aflmagnara. Nemendur leysa ýmis verkefni þar sem þeir fá frekari æfingu í að gera áætlanir, teikna og smíða rafeindarásir. Þessum rafeindarásum er síðan raðað saman í eina heild sem myndar lokaverkefni í áfanganum. Nemendur smíða rásaeiningar, mæla og prófa virkni þeirra og notagildi og annast bilanaleit í rafeindatækjum.
Áfangamarkmið
Nemandi
- þekki ýmsar gerðir aflmögnunar
- þekki mögnunarflokka A- og B-magnara
- geti hannað og tengt saman flóknar rafeindarásir
- geti gert verk- og kostnaðaráætlun fyrir hönnunarverkefni
- geti tengt rásaeiningar við stjórnbúnað
- kunni skil á bilanagreiningu í rafeindarásum
- skili skýrslu um lokaverkefnið
Efnisatriði
- Aflmagnarar, formagnarar, PushPull-rásir, aðgerðamagnarar. Lampamagnarar. Ýmsar gerðir skynjara svo sem ljósastýringar, hreyfiskynjarar, rakaskynjarar, reykskynjarar, hitaskynjarar, þrýstiskynjarar, segulskynjarar og ljósrofa (optokupler).
Námsmat
Verkefni og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.