Áfangalýsing
Í þessum áfanga er lögð áhersla á kennslu í undirstöðuþáttum í vinnu rafiðnaðarmanna. Nemendur kynnast reglum er lúta að öryggi og vinnuvernd og þeim reglugerðarákvæðum sem tengjast verkefnum áfangans. Lögð er áhersla á kennslu í efnis-, áhalda- og tækjafræði, verktækni og umgengni um kennslubúnað og efnislager. Nemendur læra að lóða með lóðbolta og beita helstu hand- og rafmagnsverkfærum sem notuð eru í rafiðnaði. Nemendur læra að nota rennimál, míkrómæli og að smíða einfaldan búnað úr málm- og plastefnum innan ákveðinna málvika. Einnig smíða nemendur einfaldar rafeindarásir og læra að beita mælitækjum, svo sem hliðrænum og stafrænum mælum eftir því sem tilefni gefst til. Þá fer fram kynning á starfsvettvangi rafiðnaðarmanna og félagasamtökum þeirra. Mikilvægt er að námsefni þessa áfanga tengist inntaki áfangans RAM 103.
Áfangamarkmið
Nemandi
- þekki til öryggis- og reglugerðaákvæða sem notuð eru í rafiðnaði
- þekki til félags- og starfsvettvangs hinna ýmsu rafiðngreina
- þekki til umhverfis- og vinnuverndarákvæða
- þekki til ákvæða í reglugerð er varða efnisatriði áfangans
- þekki eiginleika og takmarkanir þeirra efna sem unnið er með í áfanganum
- læri að vinna með algengustu handverkfæri sem notuð eru í rafiðnaði geti smíðað einfalda hluti úr málmi og plasti, t.d. kassa utan um litla rafeindastýringu
- kunni að lóða og geti gert greinarmun á góðum og slæmum lóðningum
- geti lóðað íhluti á prentrásaplötu
- geti sett saman einfalt rafeindatæki, t.d. rakaskynjara eða annað sambærilegt tæki, og gengið frá því í kassa
Efnisatriði
Umhverfis- og vinnuvernd, reglugerðir, efnisfræði. Vinna með plast og málma, handverkfæri, rafmagnsverkfæri, lóðbolta, lóðningar, smíði einfaldra rafeindatækja og tengisnúra.
Námsmat
Verkefni og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.