Í áfanganum er fjallað um spænskar bókmenntir og menningu. Kynntir eru helstu rithöfundar Spánar og listamenn (s.s. Cervantes, Lorca, Machado, Cela, Sender, Matute, Grandes, Gaite). Blöð og tímarit eru lesin, horft á kvikmyndir (s.s. eftir Saura, Almodovar, Treuba og fleiri) og hlustað á spænskt útvarpsefni. Nemendur velja sjálfir meginþemu áfangans og kynna vinnu sína reglulega, bæði munnlega og skriflega, og nýta sér þau gögn og gagnabanka sem aðgengilegir eru, einnig er lögð nokkur áhersla á þýðingar á stuttum bókmenntatextum. Nemendur eiga að geta rætt og ritað um verkefni sín á nokkuð góðri spænsku og nokkuð hratt og geta tekið þátt í allflóknum umræðum. Málfræðivillur eru kannaðar og unnið út frá þeim í verkefnum nemenda. Lögð er áhersla á flóknari atriði málfræðinnar.