Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu raforku og hvernig henni er dreift um sveitir og bæi, allt að neysluveitu notanda. Lögð er áhersla á öryggismál í tengslum við umgengni við rafmagn og hættur útskýrðar í máli og myndum. Nemendur fá æfingu í að leggja lagnir í tiltekið lagnarými þar sem þeir fylgja ákvæðum reglugerðar og stöðlum um raforkuvirki. Fjallað er enn frekar um raflagnaefni, efnisfræði rafbúnaðar og annan búnað í minni neysluveitum. Gerðar eru öryggismælingar á neysluveitu. Áfangamarkmið Nemandi
- kynnist raforkuframleiðslu og dreifikerfi
- kynnist öryggis- og reglugerðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir
- þekki einfaldar kapallagnir
- þekki einfaldar röraraflagnir og ídrátt víra
- þekki helstu raflagnatákn
- kunni skil á helstu rofum og tenglum í rafkerfum íbúðarhúsnæðis
- fræðist um algengustu heimilistæki og orkuþörf þeirra
- geri sér grein fyrir tilgangi fagmannlegra vinnubragða