Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur efli enn frekar þekkingu og færni í undirstöðuþáttum RLT 1024 og þjálfist í að beita þeim við raunhæf verkefni. Þeir fá nú þjálfun í að teikna og lesa flóknari raflagnir, bæði innfelldar og áfelldar s.s. fyrir þjónustu- og iðnaðarveitur allt að 200 Amper. Nemendur læra einnig að magntölutaka og kostnaðarreikna stærri neysluveitur s.s þjónustu og iðnaðarveitur allt að 200A.
Áfangamarkmið
Nemandi
- þekki reglur um blaðstærðir, mælikvarða og teikniáhöld
- þekki íslenskan staðal um raflagnateikningar, gerðir teikninga og öll almenn og sértæk teiknitákn
- þekki teiknireglur fyrir stærri neysluveitur, svo sem þjónustu og iðnaðarveitur allt að 200A
- þekki tæknilega tengiskilmála
- geti teiknað og teikningalesið flóknar raflagnateikningar í stærri neysluveitur, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitur allt að 200 A
- geti magntölutekið raflagnateikningar og kostnaðarreiknað stærri neysluveitur, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitur allt að 200 A
- geti valið og ákvarðað efni og búnað fyrir raflagnir í stærri neysluveitum, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 A
- hafi gott vald á heitum og hugtökum raflagnateikninga í stærri neysluveitum, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 A
- hafi gott vald á teikningalestri, magntöluskrá og kostnaðarreikningi í stærri neysluveitum, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 A
- hafi gott vald á reglugerðarákvæðum varðandi teikningar í stærri neysluveitum, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 A
- hafi gott vald á raflagnatáknum í stærri neysluveitum, svo sem þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 A
Efnisatriði
Þjónustu- og iðnaðarveitur, nýlagnir, viðhaldslagnir, varnarráðstafanir, rofabúnaður, tenglabúnaður, ljósabúnaður, stýribúnaður, raftaugar. Frágangur og skipulag teikninga. Teiknireglur og reglugerðarákvæði varðandi þurra staði, raka staði, rykuga staði, þjónustu- og iðnaðarveitur, innfelldar lagnir, áfelldar lagnir. Viðeigandi reglugerðarákvæði.
Námsmat
Byggt er á verkefnavinnu, skýrslum og lokaprófi. Lágmarkseinkunn er 5.