Í áfanganum teikna nemendur eftir lifandi fyrirmyndum, fyrirsætum. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér grundvallaratriði við módelteikningu .Þeir tileinki sér rétta hlutfallaskiptingu mannslíkamans og noti hjálpargögn svo sem lóðlínu og hjálparlínur til að bera saman stærðarhlutföll, hreyfingu og stöðu. Alhliða þjálfun er í teikningu og rannsókn á gildi og tjáningarmöguleikum línuteikningar. Í byrjun er unnið er með einfaldar og langar stöður sem síðan verða flóknari úrlausnar. Einnig er þjálfuð hraðteikning með mismunandi aðferðum. Nemendur skulu þjálfaðir við að leggja mat á vinnu sína og annarra út frá mismunandi gildismati.