Þetta er heilsársáfangi; ENS1936 er kenndur á haustönn og 2936 á vorönn. Þetta nám er ætlað nemendum sem ekki hafa staðist lágmarkskröfur í ensku við lok grunnskóla og einnig nemendum af innflytjendabraut sem hafa lítinn grunn í ensku.
Markmið
- Að rifja upp grundvallaratriði enskrar tungu, þar með bæði málfræði og orðaforða.
- Að auka sjálfstraust nemenda gagnvart ensku, bæði rituðu máli og ekki síður töluðu.
- Að auka færni nemenda í almennum samskiptum á ensku.
- Lokamarkmið í ENS2936 er að nemandi verði fullfær um að stunda nám í almennum enskuáföngum skólans.
Innihald
- Grundvallaratriði tungumálsins, orðaforði og málfræði.
- Talað mál: framburður og framsögn; einnig grundvallaratriði samræðulistar.
- Smásögur og 2 stuttar skáldsögur á einföldu máli.
- Skilningur á talmáli er þjálfaður með myndefni og tónlist.