Bleikur október!  FB og NFB standa fyrir söfnun fyrir Krabbameinsfélagið þar sem kennarar og meðlimir NFB taka þátt í áskorunum sem verða æ skemmtilegri eftir því hversu mikið safnast. Allir geta lagt inn þá upphæð sem þeim hentar og allur ágóði fer til Krabbameinsfélagsins.

Kennitala: 590182-1099

Reikningsnúmer: 0115-26-010900

Skýring: Bleika

Hér eru dæmi um áskoranir sem starfsmenn FB og nemendafélagið munu taka þátt í og um leið styðja við gott málefni.

Munið að margt smátt gerir eitt stórt!

100.000kr – Hlíf íslenskukennari hleypur og fer í kaf í sjóinn

200.000kr –  Litum hárið á Lindu þýskukennara bleikt

450.000kr – Harpa og Sigríður, listakennarar klappa kind.

500.000kr – Hulda Hlín félagsfræðikennari tekur þátt í Ice bucket Challenge

550.000kr – Skemmtinefnd fer í “fancy” fatasund

600.000kr – Hendum köku í andlitið á Viðari, umsjónarmanni fasteigna