Í gær þann 28. maí útskrifuðust 153 nemendur úr FB við glæsilega athöfn í Silfurbergi Hörpu að viðstöddum 700 manns. Alls útskrifuðust 83 nemendur með stúdentspróf, 12 sjúkraliðar, 20 húsasmiðir, 24 rafvirkjar, 11 nemendur af snyrtibraut og 10 nemendur af starfsbraut. Þess má til gamans geta að þá var þúsundasti rafvirkinn úr FB útskrifaður. Dúx skólans var Guðmundur Freyr Gíslason stúdent af náttúruvísindabraut með einkunnina 9.49. Hann sópaði að sér flestum verðlaunum. Hann fékk verðlaun fyrir bestan árangur í raungreinum, stærðfræði og spænsku. Þá hlaut hann einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands. Semídúx var Ásta Kristín Marteinsdóttir stúdent að loknu sjúkraliðanámi með einkunnina 9.43.Ávörp nýstúdenta fluttu þau Guðmundur Freyr Gíslason náttúruvísindabraut og Guðrún Marta Jónsdóttir myndlistarbraut. Melkorka Rós Hjartardóttir nemandi við skólann söng við undirleik Fannars Pálssonar. Hrafn Bogdan Seica Haraldsson nýstúdent lék á gítar og söng frumsamið lag við eigin texta. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og Elvar Jónsson aðstoðarskólameistari flutti ávarp.
Það var ljósmyndarinn Jóhannes Long sem tók myndirnar. Fleiri myndir má sjá á instagram (fbskoli) og facebook síðu skólans. Listi yfir verðlaunahafa:
Verðlaun í einstökum greinum
VIÐURKENNING FYRIR EINSTAKLEGA SKAPANDI VERKEFNASKIL: Sunneva Guðrún Þórðardóttir, myndlistarbraut
DANSKA: Eyrún Una Aradóttir, myndlistarbraut
DANSKA: Júlía Kristín Kristinsson, náttúruvísindabraut
ÍSLENSKA: Júlía Kristín Kristinsson, náttúruvísindabraut,
FRÁ STYRKTARSJÓÐI KRISTÍNAR ARNALDS
ENSKA: Ásta Kristín Marteinsdóttir, sjúkraliðabraut og stúdentsbraut að loknu starfsnámi á sjúkraliðabraut
FATA- OG TEXTÍLGREINUM: Erika Eik Bjarkadóttir, fata- og textílbraut
FÉLAGSGREINUM: Jón Björgvin Kolbeinsson, félagsvísindabraut
ÍSLENSKA: Ása Gréta Einarsdóttir, opinbraut
ÍÞRÓTTAFRÆÐI OG ÍÞRÓTTAGREINUM: Daníel Filipps Þórdísarson, íþróttabraut
ÍÞRÓTTAFRÆÐI OG ÍÞRÓTTAGREINUM: Oddný Björg Stefánsdóttir, íþróttabraut –
RAUNGREINAR: Guðmundur Freyr Gylfason, náttúruvísindabraut
SPÆNSKA: Guðmundur Freyr Gylfason, náttúruvísindabraut
STÆRÐFRÆÐI: Guðmundur Freyr Gylfason, náttúruvísindabraut
LOKAVERKEFNI TIL STÚDENTSPRÓFS: Erla María Theódórsdóttir, náttúruvísindabraut
LOKAVERKEFNI TIL STÚDENTSPRÓFS: Lína Dögg Valmundsdóttir, náttúruvísindabraut
MYNDLISTARGREINUM: Roksana Luczejko, myndlistarbraut
VIÐURKENNINGU FYRIR MESTU FRAMFARIR Á NÁMSTÍMANUM Á STARFSBRAUT: Marta Lind Vilhjálmsdóttir, starfsbraut
HÚSASMIÐABRAUT: Sigurður Óli Rúnarsson, húsasmiðabraut
RAFVIRKJABRAUT: Arnar Freyr Nikulásson, rafvirkjabraut
SJÚKRALIÐABRAUT: Ásta Kristín Marteinsdóttir, sjúkraliðabraut
SNYRTIBRAUT: Anita Lence, snyrtibraut
STÚDENTSPRÓF: Verðlaun fyrir bestan árangur
Guðmundur Freyr Gylfason, náttúruvísindabraut
Einkunn á stúdentsprófi: 9,49
MENNTAVERÐLAUN HÁSKÓLA ÍSLANDS:
Guðmundur Freyr Gylfason, náttúruvísindabraut
Einkunn á stúdentsprófi: 9,49
FRÁ SOROPTIMISTAKLÚBBI HÓLA OG FELLA
Ásta Kristín Marteinsdóttir, sjúkraliðabraut og stúdentsbraut að loknu starfsnámi á sjúkraliðabraut
Einkunn á stúdentsprófi: 9,43 – semídúx
FRÁ ROTARYKLÚBBI BREIÐHOLTS fyrir félagsstörf
Aníta Rós Kingo Andersen, tölvubraut