Lið FB er komið áfram í Gettu betur spurningakeppni RÚV eftir frækinn sigur gegn Menntakóla Borgarfjarðar í gær. Lið okkar skipa þau Inga Dís Finnbjörnsdóttir, Þorbjörn Björnsson og Vignir Már Másson. Liðið er því komið áfram í aðra umferð. Þjálfarar liðsins eru þeir Andri Þorvarðarson og Óli Kári Ólason sögukennarar. Óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn með von um gott gengi áfram.