Útskriftarsýning myndlistarbrautar FB verður opnuð á morgun laugardaginn 6. maí kl. 14:00. Fjölbreytt og metnaðarfull sýning þar sem skúlptúar, myndbandsverk, málverk, innsetningar, stuttmyndir, myndasögur og fleira verða til sýnis. Sýningin er opin 6. og 7. maí kl. 14:00 – 17:00 í Læknaminjasafninu að Neströð Seltjarnarnesi. Allir velkomnir!