Útskrift FB fer fram við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu föstudaginn 17. desember kl. 14:00.  Skólinn sér um að skipa nemendum sínum og starfsfólki í sæti en miða fyrir 4 gesti að hámarki eru í boði fyrir hvern nemanda. Miða má sækja hér. Vegna sótt­varn­ar­tak­markana þurfa allir sem ætla að mæta á útskriftina að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi. Prófið má ekki vera eldra en 48 klst. Hér eru upplýsingar um staði þar em hægt er að fara í hraðpróf. Skólinn mun afhenda nemendum sínum og starfsfólki grímur á staðnum.

Mætum í hátíðarskapi föstudaginn 17. desember í Silfurbergi Hörpu!