Æfing þann 21. maí kl. 18:00 í Háskólabíó

Allir mæta á æfingu fyrir útskrift í Háskólabíói. Stefán A og Berglind fara yfir skipulagið varðandi uppröðun og hvernig afhendingu skírteina er háttað. Mikilvægt að allt gangi snurðulaust á útskriftardaginn. Ljósmyndarinn Jóhannes Long mætir líka og fer yfir skipulag varðandi myndatökuna.

Mjög mikilvægt að allir mæti!!!

22. maí útskriftardagurinn!

  • Kl. 11:30 – Sjúkraliðar og snyrtifræðingar mæta í Háskólabíó. Myndataka og afhending viðurkenninga. Munið að mæta með búningana ykkar fyrir myndatökuna.
  • Kl. 11:45 – Allir eiga að vera komnir í Háskólabíó. Myndataka í aðalsal og allir mæta á réttum tíma svo ljósmyndarinn þurfi ekki að bíða. Nemendur geta pantað myndina hjá Jóhannesi og hann sendir hana heim til ykkar. Netfang hans er Jlong@ljosmyndarinn.is
  • Kl. 12:30 – Salurinn opnar fyrir gesti. Við hvetjum ykkur til að bjóða sem flestum vinum og vandamönnum í útskriftina. Það er nóg pláss. Pálmar Ólason leikur lög á flygilinn til kl. 13:00.
  • Kl. 13:00 – Útskrift! Allir í hátíðarskapi. Útskrift lýkur um kl. 14:45

Ágústa Unnur kynningarstjóri agu@vu2016.carl.1984.is gsm: 8691861