Mánudaginn 17. ágúst verður hægt að sækja stundatöflur í upplýsingakerfi skólans www.inna.is. Dagana 24.-26. ágúst verða nýnemadagar þar sem nýnemar mæta í litlum hópum. Nemendur og forráðamenn fá sendan tölupóst á næstu dögum með nánari upplýsingum. Kennslan hefst 27. ágúst og verður blanda af fjar-og staðnámi.