Kennsla hefst í dagskóla samkvæmt stundatöflu föstudaginn 5. janúar.  Kennsla í Kvöldskóla FB hefst þriðjudaginn 9. janúar. Viðtöl vegna breytinga á stundatöflu verða miðvikudaginn 3. janúar frá klukkan 10-16 og fimmtudaginn 4. janúar frá klukkan 8-16 í stofu 254. Fimmtudaginn 4. janúar, frá klukkan 17-19 verður innritun á staðnum fyrir vorönn 2018 í Kvöldskóla FB. Námsráðgjafar, fagstjórar, áfangastjóri og fleiri góðir verða á staðnum til að ráðleggja og aðstoða nemendur við val. Allir hjartanlega velkomnir. Einnig er hægt að innrita sig  á www.fb.is