Kennsla hefst föstudaginn 20. ágúst. Skólasetning og nýnemamóttaka verður miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 15:00 í matsal skólans. Dagskrá lýkur um kl. 17:00.

Aðgangur nemenda að Innunni hefur verið opnaður og þar má sjá stundatöflu nemenda. Stundatöflur nemenda á starfsbraut opna föstudaginn 13. ágúst kl. 16. Þið sjáið einnig námsgagnalistann í INNU.

Viðtöl vegna stundatöflunnar (ef það þarf að breyta eða laga) verða miðvikudaginn 18. ágúst frá kl. 8 – 16 og er það gert á Teams eða í farsíma.

Við bendum ykkur á að þeir nemendur sem eru skráðir í íþróttir hafa aðgang að World Class Breiðholti á virkum dögum frá kl. 8-16, án endurgjalds. Aðrir geta fengið þannig aðgang með því að skrá sig á skrifstofu skólans. Þið þurfið að skrá ykkur í fyrstu kennsluviku.

Hægt er að segja sig úr áfanga til 10. september. Allar nánari upplýsingar má lesa í tölvupósti frá Berglindi Höllu áfangastjóra.