Skrifstofa skólans lokar vegna sumarleyfa 1. júlí og opnar á ný 8. ágúst kl. 8:00. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu þann 15. ágúst. Skólasetning og nýnemamóttaka verður fimmtudaginn 17. ágúst kl. 13:00 – 17:00. Dagskrá hefst á skólasetningu Guðrúnar Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara í matsal nemenda Skuggaheimum. Að því loknu sjá deildir skólans um dagskrá fyrir sína nemendur. Kennsla hefst 18. ágúst samkvæmt stundatöflu. Stefnt er að töflubreytingum 16. og 17. ágúst. Nánar auglýst síðar.