Miðvikudaginn 29. nóvember halda nemendur sköpunaráfanga FB tónleika í samstarfi við Tónlistarskóla Sigursveins í Hraunbergi. Tónleikarnir verða í Skuggaheimum matsal nemenda. Húsið opnar kl. 19:30 og hefjast tónleikarnir kl. 20:00. Þetta verður notaleg kvöldstund með góðri tónlist. Allir velkomnir og heitt á könnunni.