Frá og með morgundeginum, miðvikudegi 7. október, verður allt nám í FB í fjarnámi, eins og kostur er. Nemendur eru beðnir um að fylgjast mjög vel með skilaboðum frá kennurum sínum.

Þessi ákvörðun gildir út þessa viku. Mögulega verða tilteknir hópar nemenda kallaðir inn í skólann í næstu viku og munu þá fá skilaboð þar um. Þessi ákvörðun gildir jafnt um dagskóla sem kvöldskóla.

Nemendur eru beðnir að fylgjast með nánari upplýsingum frá kennurum sínum varðandi tilhögun kennslunnar.

Með bestu kveðju,

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari