Sveinspróf í húsasmíði verður haldið 5-7. júní 2020. Umsóknarfrestur er til 1 apríl.

Umsækjandi þarf að framvísa staðfestum námssamningi, skila inn burtfararskírteini eða staðfestingu frá skóla um að hann ljúki námi á yfirstandandi önn og muni fá útgefið burtfararskírteini. Lífeyrissjóðsyfirlit, til staðfestingar á vinnustaðanámi, þarf að fylgja umsókn. Umsókn sendist til Iðan fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104, R. s. 5906400.Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.