Áfram gildir sú ákvörðun að allt nám í FB verður í fjarnámi, eins og kostur er.

Tilteknir hópar nemenda í verknámi, listnámi og á starfsbraut verða kallaðir inn í skólann í næstu viku. Þeir nemendur sem um ræðir munu fá skilaboð þar um frá kennurum sínum.

Þessi ákvörðun gildir jafnt um dagskóla sem kvöldskóla.

Nemendur eru beðnir um að fylgjast mjög vel með skilaboðum frá skólanum.

Með bestu kveðju,

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari