Nemendur sem óska eftir töflubreytingum mæta í tölfluviðtöl í næstu viku. Þriðjudaginn 18. ágúst kl. 12:30 – 16 mæta útskriftarnemendur haust 2020 og vor 2021 en aðrir auðvitað velkomnir  líka. Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 8 – 16 koma allir aðrir nemendur. Viðtölin verða í stofum 254 og 255. Nemendur taki númer fyrir framan stofuna og handhafi lægsta númers hverju sinni gengur fyrir. Stundatöflum verður ekki breytt eftir að viðtölum er lokið. Athugið að nemendur hafa heimild til að skrá sig úr áföngum til 4. september. Fylla verður út sérstakt eyðublað til þess sem fæst á skrifstofu skólans.