Í áfanganum þjálfast nemendur í meðferð tölulegra upplýsinga og úrvinnslu þeirra og framsetningu. Þeir læra helstu tákn og formúlur sem notaðar eru í gagnavinnslu og líkindareikningi. Nemendur vinni rannsóknarverkefni sem tengist raunveruleika þeirra. Kynnast gagnavinnsla úr talnasafni, gerð tíðnitaflna, súlurita, stuðlarita, línurita auk annarrar myndrænnar framsetningar gagna. Þeir læra helstu mælikvarða á miðsækni og dreifingu, nánar tiltekið: meðaltal, miðgildi, tíðasta gildi, vegið meðaltal, seiling, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutafallslegu fráviki. Grunnhugtök talningarfræði: margföldunarregla, n hrópmerkt, umraðanir og samantektir. Grunnhugtök líkindafræðinnar: úrtaksrúm, sammengi, sniðmegni, fyllimengi og tengsl atburða. Hópverkefni.