Í dag föstudaginn 24. febrúar stendur nemendum og starfsmönnum FB til boða að hlýða á Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg í Hörpu á 30 mínútna löngum tónleikum. Á tónleikunum verður leikin Rapsódía um stef eftir Paganini og einleikari er enski píanistinn Stephen Hough. Rúmlega þrjúhundruð nemendur hafa forskráð sig á tónleikana í dag. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:00 og komið tilbaka kl. 11:00.