Sæludagar FB verða dagana 1. og 2. mars. Þá verður hefðbundið skólastarf brotið upp og nemendum boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Í ár er framboð hópa mjög fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allir nemendur FB velja sér þrjá hópa, þ.e. einn hóp fyrir hvern dagspart.

Ætlast er til að nemendur mæti á Sæludaga. Fyrir mætingu fá nemendur felldar niður fjarvistir. Fyrir 100% mætingu á sæludagana (þrjú skipti) geta nemendur fengið felldar niður fjarvistir sem nema allt að 12 fjarvistastigum. Athugið að fjarvistir eru felldar niður í lok annar.

Skráning í hópa hefst stundvíslega kl. 09:30 á þriðjudaginn inni á sæludagavefnum og hægt er að skoða dagskrána á http://saeludagar.is/

Þess má geta að nemendur Hjörvars hönnuðu nýja sæludagavefinn.

Nemendur skrá sig inn á vefinn með kennitölu. Nemendur verða að hafa hraðar hendur þegar skráning hefst og finna þann hóp sem hentar og getur aukið gleði og visku. Takmarkaður fjöldi er í suma hópa og þá gildir reglan; fyrstir koma, fyrstir fá.

Athugið að allar upplýsingar um hópana eru á vefnum (klukkan hvað á að mæta, hvert á að mæta og kostnaður þegar það á við).

Árshátíð NFB verður haldin fimmtudaginn 2. mars. Glæsilegt borðhald með girnilegum veislumat verður í skólanum en árhátíðarballið verður á Spot í Kópavogi. Nánari upplýsingar um árshátíðina fást þegar nær dregur. Nemendur frá frí daginn eftir (3. mars).