Dagana 25. nóvember til 10. desember stendur yfir árlegt átak Soroptimista gegn ofbeldi á hendur konum; Roðagyllum heiminn. Í ár eru einkennisorð átaksins Þekktu rauðu ljósin. Með átakinu vilja Soroptimistar sýna að þær standa fyrir bjartari og bjartsýnni framtíð, lausri við ofbeldi, með því að upplýsa og fræða. FB styður við átakið í samstarfi við Soroptimistaklúbb Hóla og Fella með því að varpa roðagylltri birtu á skólann dagana sem átakið stendur yfir.