Föstudaginn 16. desember kl.11-12 verður prófsýning í dagskólanum en kl. 18-19 í kvöldskólanum. Allir kennarar verða á staðnum. Við hvetjum nemendur til að koma og skoða prófin sín. Opnað verður fyrir einkunnir í Innu í siðasta lagi kl. 11 föstudaginn 16. desember. Kennsla hefst að nýju miðvikudaginn 4. janúar í dagskóla samkvæmt stundatöflu en mánudaginn 9. janúar í kvöldskóla. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu síðdegis þann 30. desember. Töflubreytingar í dagskóla verða 2. og 3. janúar. Nánar auglýst síðar.