Í dag var undirritaður samningur  þess efnis að nemendur sem skráðir eru í íþróttir í skólanum hafa aðgang að World Class heilsuræktarstöðinni og Sundlaug Breiðholts alla virka daga milli kl. 8:00 og 16:00. Samningurinn gildir á vorönn 2018. Upplýsingar um nemendur verða sendar til World Class og geta nemendur þar sótt um að verða skráðir í stöðina. Samningurinn er gerður til þess að hvetja nemendur til aukinnar hreyfingar og að nýta eyður í stundatöflunni til að fara í ræktina. Við biðjum nemendur að ganga vel um stöðina, þannig að FB og World Class haldi áfram samstarfi um aukna heilsurækt nemenda. ​Á myndinni má sjá þau Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara og Ólaf Jóhannesson stöðvarstjóra World Class undirrita samninginn.