Í áfanganum kynnast nemendur þeim þáttum sem gera landsvæði misjafnlega byggileg, þekki mynstur íbúadreifingar og fólksfjöldaþróun á jörðinni. Þeir beri saman iðnríki og þróunarlönd með tilliti til auðlinda, atvinnuhátta, lífskjara, og menningareinkenna, og átti sig á hvernig ríki heims mynda efnahagslega heild og geri sér grein fyrir búsetubreytingum í heiminum. Þeir þekki helstu alþjóðastofnanir heims og hlutverk þeirra og kanni þróunarsamvinnu Íslands og annarra landa. Nemendur kynnist staðtölum um íbúadreifingu og þróun fólksfjölda á jörðinni, breytingar á búsetumynstri og borgarvæðingu. Þá verður gerður samanburður á atvinnugreinum á milli ríkja heims, atvinnumöguleikar í þróunarlöndunum kannaðir og, sjálfbær þróun, félagsleg og stjórnmálaleg staða þróunarlanda, þróunarhjálp og þróunarsamvinna skoðuð. Einnig verður fjallað um alþjóðastofnanir.