Ákveðið hefur verið að öll kennsla í skólanum verði áfram í fjarnámi út vikuna í ljósi þess að enn eru að greinast mörg smit i samfélaginu. Þetta gildir fyrir bóknám, verknám og listnám, jafnt í dagskóla sem kvöldskóla. Nemendur eru beðnir að fylgjast með upplýsingum frá kennurum sínum. Nemendur starfsbrautar (sérdeild skólans) mæta áfram í skólann. Við bendum ykkur á, kæru nemendur, að fara í skimun ef þið finnið fyrir einkennum.