Við hvetjum alla nemendur skólans til þess að taka þátt í jólakortasamkeppni skólans. Frestur til að skila inn tillögum er til mánudagsins 7. desember 2020. Fyrstu verðlaun eru 40.000 kr. Jólakortið verður rafrænt í ár og skila skila tillögum á netfangið jolakort@fb.is eða á skrifstofu skólans í lokuðum umbúðum merktar „Jólakort 2020“. Nafn höfundar skal vera í lokuðu umslagi sem er fest við tillöguna.