Jólakortið verður rafrænt í ár og skal skila tillögum á netfangið jolakort@fb.is eða á skrifstofu skólans í lokuðum umbúðum merktum „jólakort 2021“. Skila má tillögum á usb lykli, málverki eða teikningu. Nafn höfundar skal vera í lokuðu umslagi sem fyrlgir tillögunni. Frestur til að skila inn tillögum er til mánudagsins 6. desember 2021. Hvetjum alla nemendur til þess að taka þátt. Fyrstu verðlaun eru 40.000kr.