Fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20:00 verður fyrirlestur í Sunnusal á vegum foreldrafélags FB. Allir foreldrar eru hjartanlega velkomnir og verður boðið upp á léttar veitingar frá kl. 19:30. Það er Pálmar Ragnarsson fyrirlesari og körfuboltaþjálfari sem kemur í heimsókn til okkar og spjallar við foreldra. Pálmar hefur slegið í gegn með fyrirlestrum um jákvæð samskipti. Fyrirlesturinn hefur hann flutt fyrir marga af stærstu vinnustöðum landsins, ýmis ráðuneyti og fleiri. Í fyrirlestrinum fjallar hann á skemmtilegan hátt um það hvernig við getum náð því besta úr fólkinu í kringum okkur með góðum samskiptum. Samhliða því tekur hann mörg skemmtileg dæmi af samskiptum barna á íþróttaæfingum og yfirfærir á foreldrahópinn auk þess sem hann segir frá niðurstöðum rannsóknar sem hann gerði á samskiptum í meistaranámi sínu í Háskóla Íslands. Efni fyrirlestrarins getur fólk síðan nýtt sér bæði í samskiptum við börnin sín og fólkið í kringum sig. Við hvetjum foreldra til að fjölmenna á frábæran fyrirlestur!