Á forvarnardeginum 8. febrúar kl.11 munu þær Chanel Björk og Miriam Petra flytja fyrirlestur í matsal nemenda. Fyrirlestrinum verður einnig streymt í kennslustofur. Fyrirlesturinn fjallar um rasisma og menningarfordóma í íslensku samfélagi. Farið verður yfir nokkur hugtök sem tengjast fordómum a Íslandi og þau sett í samhengi við raunveruleika fólks af erlendum uppruna. Spjallið er byggt á fræðilegri þekkingu og persónulegri reynslu Chanel og Miriam af því að vera sjálfar Íslendingar með blandaðan bakgrunn.