Glæsilegur árangur FB á Íslandsmóti iðn- og verkgreina 2014

  • Í snyrtifræði fengu nemar okkar gull, silfur og brons. Það var Kristín Á. Snorradóttir sem fékk gullverðlaun, Linda Pálsdóttir silfur og Kara B. Bessadóttir hlaut bronsverðlaun.
  • Sjúkraliðanemarnir Berglind Gunnarsdóttir og Kristrún Pétursdóttir hlutu silfurverðlaun.
  • Rafvirkjaneminn Alexander Sigurðsson hlaut silfurverðlaun.

Við óskum öllum nemum sem tóku þátt og kennurum þeirra innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!