Fræðsludagurinn verður fimmtudaginn 28. september. Boðið er upp á námsver og vinnustofur, ferðir, fyrirlestra og ýmislegt annað; bæði fyrir og eftir hádegi. Þá eru einstakir viðburðir allan daginn. Engin kennsla samkvæmt stundaskrá er í dagskólanum þennan dag. Nemendur skrá sig á viðburði á vefslóðinni saeludagar.is með því að slá inn kennitölu sína. Ef nemandi skráir sig í einn viðburð og mætir í hann verða 4 fjarsvistarstig felld niður, ef hann mætir allan daginn verða 8 fjarvistarstig felld niður. Þessi fjarvistarstig eru felld niður í lok annar. Nemendur eru hvattir til að skrá sig á viðburði sem fyrst.