Kynning fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður miðvikudaginn 28. september kl. 17:30-19:00 í Sunnusal. Dagskráin hefst á ávarpi skólameistara, þá kynnir áfangastjóri Innu, upplýsingakerfi fyrir framhaldsskóla. Þá munu fulltrúar nemendafélagsins kynna félagsstarfið. Að lokinni kynningu verður boðið upp á kaffiveitingar og óformlegt spjall. Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá nemendur bregða sér í siglingu á kajak í nýnemaferðinni á Stokkseyri.